...dagny eir =)...
 


Segja hjónabandið standa traustum fótum
Victoria og David Beckham hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu þess efnis að hjónaband þeirra standi á traustum grunni.
Í yfirlýsingunni segir að þau séu einstaklega hamingjusöm saman, en því hefur verið haldið fram að hjónaband þeirra sé á vonarvöl vegna sölu Davids til spænska stórliðsins Real Madríd. Þau segja þar ennfremur að þeirra eina vandamál felist í því að þau hafi ekki fundið húsnæði í Madríd sem uppfyllir kröfur þeirra.


Þreytt á afturendum
Söngkonan Beyoncé Knowles sem vakið hefur athygli margra á afturendum kvenna og þeirri fegurð sem í þeim felst, segist nú vera orðin þreytt á þeirri umræðu sem hún hefur stofnað til.
"Þetta er mjög kjánalegt. Ég samdi lagið Bootylicious fyrir þremur árum. Nú er þetta orð í orðabók. Í hreinskilni sagt þá hata ég þetta orð," sagði Beyoncé.
Knowles, sem kom fyrst fram á sjónarsviðið í hljómsveitinni Destiny's Child, hefur verið gagnrýnd vegna söngva sinna og örvandi myndbanda þar sem hún þykir hreyfa afturenda sinn með afar frjálslegum hætti. Samkvæmt ummælum sínum í viðtali fyrr í vikunni hefur hún nú látið af slíkri hegðan og segir að það sé tímabært að breyta um stíl: "Ég er að eldast og stíll minn á að endurspegla það," sagði Knowles í viðtalinu.


Destiny's Child undirbúa nýja plötu
Stúlkurnar í Destiny's Child eru farnar að huga að gerð nýrrar plötu. Beyoncé, sem undanfarið hefur verið að gera allt vitlaust með laginu "Crazy in Love", segir það ósk sína að lögin á plötunni væntanlegu verði á trúarlegum nótum enda hafi þær stúlkur þroskast mikið andlega síðan síðasta plata, Survior, kom út.
Stjórarnir hjá Sony voru víst ekkert alltof hressir þegar þeir fréttu af þessari yfirlýsingu Beyoncé því þeir hafa áhyggjur af því að gospeltónlistin eigi eftir að fæla frá gamla Destiny's Child-aðdáendur.


70 ára gömul kona höfðar mál á hendur Eminem
70 ára gömul kona í Los Angeles hefur höfðað mál á hendur tónlistarmönnunum Dr. Dre og Eminem fyrir að hafa notað tónlistarbút án heimildar. Konan, Harlene Stein, telur að tónlistarmennirnir hafi notfært sér tónlist frá eiginmanni sínum, Ronald, á breiðskífu Eminem, sem nefnist Slim Shady. Harlene segir að í laginu "Guilty Conscience" sé að finna bút úr laginu "Pigs Go Home", sem Ronald samdi fyrir kvikmyndina "Getting Straight" frá 1970.
Lögmaður Harlene segir að á breiðskífunni sé ekki vitnað til höfundar lagbútsins né hafi fjölskylda hennar fengið greiðslu fyrir notkun á hljóðbútinum. Hljóðar málshöfðunin upp á allt að því 160 milljónir króna. Þá fer Harlene fram á það að útgáfufyrirtækið, sem dreifði Slim Shady, hætti dreifingu á Guilty Conscience með hljóðbútinum, að sögn ananova.com.


Mel C meiddist
Fyrrum sportkryddið Mel C var flutt á spítala eftir að hafa meiðst á hné við sjónvarpsupptökur fyrir þátt á BBC Channel 4. Mel var í glímu við Ungfrú Heim, Azra Akin, í mesta gríni þegar hún féll á gólfið og lenti illa.
Hún öskraði af sársauka og sérfræðingar litu strax á meiðsl hennar. Mel er því úr leik í þættinum, sem snýst um að láta frægt fólk keppa í alls kyns íþróttaviðburðum. Fyrir slysið var hún í þriðja sæti. Sjónvarpskonan og fyrirsætan Gail Porter hafði sagt sig úr keppni daginn áður.
Mel sleit þrenn liðbönd í hné og var flutt á spítala. Hún hafði æft sig í rúma tvo mánuði fyrir tökur þáttarins og var staðráðin í því að standa sig.


Kveikti í brúðarkjólnum til að losna við púka kulnaðrar ástar
Hermt er að söng- og leikkonan Jennifer Lopez hafi framið sérstæðar særingar sem fólust í því að hún kveikti í brúðarkjólnum sínum. Sagt er að JoLo hafi verið svo í mun að losa sig við púka hinnar kulnuðu ástar hennar og fyrrum unnusta hennar Bens Afflecks að hún hafi borið eld að Vera Wang-brúðarkjólnum sínum, sem kostaði litla 25.000 dali eða tæpar tvær milljónir króna, í einkennilegri athöfn sértrúarsöfnuðar sem notar skepnur í fórnir, að því er kemur fram í frétt breska dagblaðsins Daily Star af málinu.
Lopez mun hafa verið svo hrædd um að ástarlíf sitt væri dauðadæmt og að bölvun hvíldi á sér að hún framdi hin dramatíska gjörning samkvæmt ráðleggingum Merle Gonzalez, Ju-Ju miðils og „guðmóður“ hennar, sem er í karabíska Santeria-söfnuðinum sem fremur ýmiss konar særingar s.s. að fórna dýrum, kyrja og fara í trans.
Vinur Lopez sagði í samtali við The Star: „Jennifer er mjög hjátrúarfull. Hún vildi losa sig við allt það sem tengdist þessu dauðadæmda brúðkaupi. Hún lét eyðileggja kjólinn í helgisið sem átti að hreinsa áru hennar og lyfta burt svörtu skýi sem hékk yfir höfði hennar.“
Eftir brennsluathöfnina ku Lopez hafa sagt við þennan vin sinn: „Mér finnst eins og einhver hafi lagt á mig bölvun. Síðustu mánuðir hafa verið myrkir - ég þarf að byrja upp á nýtt og það að losa mig við þennan kjól var fyrsta skrefið.“


Britney í slagtogi við Madonnu
Söngkonan Britney Spears hyggst syngja lag á væntanlegri breiðskífu sinni með Madonnu, en myndband við lagið, sem nefnist „Me Against the Music", verður sýnt á MTV-sjónvarpsstöðinni þann 13. október. Það er fyrsta smáskífan á væntanlegri breiðskífu. Framkoma þeirra á MTV-tónlistarhátíðinni fyrir nokkrum vikum vakti athygli, en fjölmiðlar hafa gert sér mat úr kossi þeirra á sviðinu. Fjórða breiðskífa Britney verður nefnd „Get In The Zone", en hún er væntanleg 17. nóvember. Þar koma við sögu P. Diddy, R. Kelly og Moby. 13 lög verða á breiðskífunni, en sjö þeirra eru unnin í samvinnu við Britney. Þá ætlar Britney að fara í tónleikaferð um Bandaríkin á næsta ári.


Birgitta á Hanni hætt saman
Birgitta Haukdal og Jóhann Bachmann trommari Írafárs eru víst hætt saman. Birgitta sagði frá þessu á Stöð 2 í gærkvöldi. Þau hættu saman í sumar og hafa leynt þjóðinni þessum tíðindum um tíma en þess ber að geta að Írafár mun engu að síður leika saman áfram í óbreyttri mynd. Ný plata með sveitinni er væntanleg innan tíðar og bíða margir aðdáendur þeirra með óþreyju eftir að heyra nýja tóna með sveitinni.


Romeo Beckham fékk skurð á höfuðið
Yngri sonur enska knattspyrnumannsins Davids Beckhams var fluttur á sjúkrahús í Madríd í gær eftir að hann datt í lyftu og fékk skurð á höfuðið. Sauma þurfti tvö spor í enni hans en mikið blæddi úr sárinu. Breska blaðið The Sun hefur eftir ættingja drengsins að Romeo sé nýlega farinn að ganga og sé því óstyrkur á fótunum. Beckham og Victoria kona hans flýttu sér á sjúkrahúsið þegar þau heyrðu af slysinu en drengurinn var með ömmu sinni þegar það gerðist. Beckham leikur fyrsta leikinn með Real Madrid í Meistaradeild Evrópu á Bernabeu-leikvanginin í Madríd síðar í dag gegn franska liðinu Olympique Marseille.


Sheen og Richards eiga von á barni
Leikaraparið Charlie Sheen og Denise Richards eiga von á barni næsta vor. Sheen á 18 ára stúlku frá fyrsta hjónabandi sínu, en hann giftist Richards í júní 2002. Þau leika saman í Scary Movie 3, sem frumsýnd verður í Bandaríkjunum í október.
Sheen, sem er 38 ára, og Richards, sem er 32 ára, kynntust við tökur á kvikmyndinni Good Advice árið 2000. Í framhaldi léku þau saman í þáttunum Spin City.


Verndar dótturina
Madonna segir í viðtali við tímaritið Times að það sé henni kappsmál að vernda dóttur sína frá þeirri glyðruímynd sem hún hefur stundum haft í poppheiminum. Viðtalið birtist stuttu eftir að Madonna fór í sleik uppi á sviði við þær Britney Spears og Christinu Aguilera á verðlaunahátíð nú á dögunum. Madonna segist leggja mikið á sig til að Lourdes, sem er sjö ára, sjái ekki slíkt efni með móður sinni fyrr en hún er orðin mun eldri. "Ég útskýri þá fyrir henni að þetta sé sýning og að þarna sé ég leikkona í hlutverki." Madonna viðurkennir að hún sé búin að róast mikið frá því hún tók út sitt villtasta skeið en hún sér ekki eftir neinu. Viðtalið var tekið í tilefni af útkomu fyrstu barnabókar Madonnu en bókin kemur í verslanir í yfir 30 löndum í dag.


Lopez og Affleck sögð hætt saman
Svo virðist sem kvikmyndaleikararnir Ben Affleck og Jennifer Lopez séu skilin að skiptum eftir að áform þeirra um að gifta sig um síðustu helgi fóru út um þúfur. Fullyrt er að þau hafi eytt helginni sitt í hvoru lagi, Lopez hafi verið í húsi sínu á Miami í Flórída en Affleck hafi á föstudagskvöld verið í Hustler spilavítinu í Los Angeles og sést yfirgefa staðinn snemma á laugardagsmorgun í fylgd dökkhærðar konu og á laugardag hafi Affleck verið í Las Vegas.
Breska blaðið The Sun hefur eftir heimildarmanni að allt sé búið á milli þeirra Lopez og Affleck. Haft er eftir vinum Afflecks að hann hafi hringt í þá í síðustu viku og sagt þeim að þau Lopez væru hætt saman. Um helgina hefur verið orðrómur um að Affleck hafi fengið bakþanka og sagt vinum sínum að ef hann giftist Lopez yrðu það mestu mistök sem hann hefði gert. Fjölmiðlar hafa einnig eftir heimildarmönnum að Lopez hafi fengið efasemdir um sambandið við Affleck og talið ljóst að hann væri ekki tilbúinn að hætta glaumgosalífi sínu. Tímaritið People segir að það hafi í raun verið Chris, móðir Afflecks, sem reið baggamuninn. Hún hafi spurt son sinn hvort hann gæti í alvöru séð fyrir sér að þau Lopez stofnuðu fjölskyldu.


Tímaritið People hefur gefið fræga fólkinu einkunn fyrir klæðaburð árið 2003. Þær stjörnur sem þykja hvað best klæddar um þessar mundir eru Kate Hudson, Nicole Kidman, Salma Hayek, Renee Zellweger, Cameron Diaz og Halle Berry. En hverjar eru þá verst klæddar? Jú, Britney Spears, Tara Reid og Lara Flynn Boyle voru fremstar í flokki þeirra. Jennifer Aniston er sett í flokk með Hudson, Kidman og Berry en Jennifer Lopez, Eve og Kelly Osbourne er lýst sem kamelljónum sem myndu aldrei láta sér detta í hug að láta útlit sitt verða gamaldags. Rosario Dawson, Mariah Carey og Courtney Love fengu XXX í einkunn fyrir þær fáu flíkur sem þær klæðast hverju sinni. Winona Ryder, Da Brat og Cynthia Nixon voru settar í sér flokk fyrir afar efnisrýra toppa.